
Skrifa texta með lyklaborðinu
Síminn er með fullbúið lyklaborð.
1
Virknitakki. Þau sértákn sem eru prentuð efst á takkana eru slegin inn með því
að halda inni virknitakkanum og ýta svo á viðkomandi takka. Til að slá inn nokkra
sérstafi í röð ýtirðu tvisvar á virknitakkann. Til að skipta yfir í venjulega stillingu
ýtirðu aftur á virknitakkann.
6
Tækið tekið í notkun

2
Skiptitakki. Til að skipta á milli hástafa og lágstafa ýtirðu tvisvar á
skiptitakkann. Til að setja inn stakan hástaf í lágstafastillingu eða stakan lágstaf
í hástafastillingu ýtirðu á skiptitakkann og svo á viðeigandi bókstafatakka.
3
Sym-takki. Ýttu á sym-takkann og veldu viðeigandi staf til að setja inn sérstafi
og tákn sem sjást ekki á lyklaborðinu.
4
Bakktakki. Ýttu á bakktakkann til að eyða staf. Haltu bakktakkanum inni til
að eyða mörgum stöfum.
5
Færslutakki. Ýttu á færslutakkann til að færa bendilinn yfir í næstu línu eða
innsláttarreit. Viðbótaraðgerðir fara eftir því hvað er verið að gera.
6
Ctrl-takki. Til að afrita, klippa eða líma valinn texta skaltu halda inni ctrl-
takkanum og ýta um leið á C, X eða V. Til að velja allan textann skaltu halda inni
ctrl-takkanum og ýta um leið á A.
Stafbrigði sett inn
Þú getur til dæmis sett inn broddstafi. Til að setja inn stafinn á heldurðu sym-
takkanum inni og ýtir um leið endurtekið á A þar til rétti stafurinn birtist. Það fer eftir
því hvaða tungumál er valið hvaða bókstafir birtast og í hvaða röð.