Hugbúnaður símans uppfærður með símanum
Viltu auka afköst símans og fá uppfærslur á hugbúnaði og nýjar og skemmtilegar
aðgerðir? Uppfærðu hugbúnaðinn reglulega til að fá sem mest út úr símanum. Einnig
er hægt er að stilla símann á sjálfvirka leit að uppfærslum.
Viðvörun:
Ekki er hægt að nota tækið, jafnvel ekki til að hringja neyðarsímtöl, fyrr en
uppfærslunni er lokið og tækið hefur verið endurræst.
Nokia-þjónusta
31
Við notkun þjónustu eða niðurhal efnis getur þurft að hlaða niður miklu gagnamagni
og greiða fyrir gagnaflutning.
Áður en uppfærslan er ræst skaltu tengja hleðslutækið eða ganga úr skugga um að
rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu.
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
.
1 Veldu
Tæki
>
Uppfærslur tækisins
.
2 Veldu
Nýjustu upplýsingar
til að sjá núverandi útgáfu hugbúnaðarins og athuga
hvort hægt er að fá hann uppfærðan.
3 Veldu
Sækja tækishugbúnað
til að hlaða niður og setja upp uppfærslu á
hugbúnaði. Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.
4 Ef hætt var við uppsetningu að niðurhali loknu velurðu
Setja upp uppfærslu
.
Uppfærslan getur tekið nokkrar mínútur. Hafðu samband við netþjónustuveituna ef
þú átt í vandræðum með uppfærsluna.
Sjálfvirk leit að hugbúnaðaruppfærslum
Veldu
Sjálfvirk uppfærsla
og tilgreindu hve oft skal leita að nýjum
hugbúnaðaruppfærslum.
Netþjónustuveitan getur sent hugbúnaðaruppfærslur beint í símann. Símafyrirtækið
veitir nánari upplýsingar.